Monday, March 13, 2006

Við Jón Ari erum komin með nýtt sameiginlegt blogg sem er betur viðhaldið en þetta við erum með addressuna http://jonariogannasigga.blogspot.com

|

Thursday, February 09, 2006

Búin með patho búin með önnina vei

|

Búin með patho búin með önnina vei

|

Búin með patho búin með önnina vei

|

Tuesday, February 07, 2006

Ég heldáð ég sé lélegasti bloggari í heimi ég er alltaf að ákveða að vera duglegri en viti menn... ekkert gerist.
Ég er um það bil að mygla þessa dagana ég á eitt próf eftir og er komin með svoho mikið leið á lærdómi auk þess að vera mygla í kjölfari bókalesturs er ég líkaað úldna í orðsins fylstu merkingu. Fyrir svona hálfum mánuði dó vatnshitarinn í íbúðinni hjá mér þannig að hér er orðið ansi skítugt. Ég get ekki hringt í leigusalann minn vegna þess að það er svo mikið drasl inni á baði, ef hún sæi draslið væri ég sennilega komin á g0tuna samstundis. Þar sem að taka til er eftir próf verkefni þá fær það að bíða föstudags. Þangað til neiðist ég að hengja mig upp á fólk til að komast í sturtu. Það hefur meira að segja gengið svo langt að ég hef drifið mig í leikfimi til að skola af mér það mesta.
Jæja ég ætla ráðast á bækurnar á ný... tveir dagar eftir

|

Saturday, November 05, 2005

nokkrar myndir

Jón Ari og Jenný komu í október og voru í þrjá daga set inn fleiri myndir seinna




|

Wednesday, October 26, 2005

ekki öll vitleysa eins

Ég sel þetta ekki dýrara en ég keypti það

  • Coca-Cola var upphaflega grænt á litinn.
  • Hawaiíska stafrófið inniheldur 12 bókstafi.
  • Borg með flesta Rolls Royce eigendur per íbúa: Hong Kong.
  • Hæsta hlutfall íbúa sem ganga til vinnu (fylki í USA): Alaska.
  • Prósenta af villtri náttúru í Afríku: 28%
  • Prósenta af villtri náttúru í N-Ameríku: 38%
  • Málin á Barbie væri hún manneskja: 39-23-33.
  • Kostnaður við að ala upp millistóran hund í 11 ár: $6,400 (387.200 krónur)
  • Meðalfjöldi flugfarþega yfir Bandaríkin á klukkustund: 61,000.
  • Gáfað fólk hefur meira af sink og kopar í hárinu en aðrir.
  • Yngstu foreldrar í heiminum voru 8 og 9 ára og bjuggu í Kína 1910.
  • Yngsti páfinn var 11 ára.
  • Fyrsta vélritaða skáldsagan: Tom Sawyer.
  • Kóngarnir í spilastokk eiga glæsilegar fyrirmyndir úr sögunni:
  • Spaðakóngur Davíð konungur,
  • Laufakóngur - Alexander mikli,
  • Hjartakóngur - Karlamagnús,
  • Tígulkóngur - Júlíus Sesar.
  • 111,111,111 x 111,111,111 = 12,345,678,987,654,321
  • Ef stytta af hesti með manni á hefur báða framfætur á lofti ....þá dó maðurinn\r\ní bardaga. Ef hesturinn er með annan framfót á lofti ....þá dó maðurinn\r\naf sárum sem hann hlaut í bardaga. Ef hesturinn er með alla fjóra fætur\r\ná jörðinni ....þá dó maðurinn eðlilegum dauðdaga.
  • "I am" er styttsta fulkomna setning í ensku máli.
  • Hershey\'s Kossar fengu nafnið vegna þess að vélin sem framleiðir þá virðist\r\nkyssa færibandið.
  • Frasinn \'þumalfingursregla\' kemur úr gömlum enskum lögum og þýddi að enginn\r\nmætti lemja eiginkonu sína með neinu sverara en sem svaraði ummáli þumalfingurs.
  • Nafnið Jeep (Jeppi) varð til úr skammstöfun frá US Army, "General\r\nPurpose" farartæki, G.P.
  • Q. Það eru fleiri collect símtöl þennan dag en nokkurn annan á ári. \r\n",1]
    ); A. Father's Day
  • 40% þeirra sem koma í partí til þín hnýsast í lyfjaskápinn þinn.
  • Epli. laukur og kartafla hafa sama bragð. Mismunur á keim er vegna lyktarinnar.
  • Til að sanna þetta geturðu klemmt nasirnar og tekið bita af öllum. Þau
    hafa öll sætt bragð.
  • Áætlaður fjöldi M&M sem selt er í USA er 200.000.000 á degi hverjum.
  • Vínber springa ef þau eru sett í örbylgju.
  • Vín eyðileggst ef ljós skín á það, þess vegna er það geymt í lituðu gleri..
  • Heimiliskettir hata lykt af citrus ávöxtum.
  • Íbúum Kentucky er skylt samkvæmt lögum að baða sig minnsta kosti einu sinni
    á ári.
  • 203 milljón dollurum er árlega eytt í gaddavír í Bandaríkjunum. (12.281.500.000
    krónur)
  • Ekkert orð í enskri tungu rímar við "month".
  • Ef þú setur rúsínu í kamavínsflösku mun hún stöðugt sökkva og fljóta til
    skiptis.
  • Ef þú ert hedenophobic, þá óttastu vellíðan.
  • "Almost" er lengsta orð í ensku með alla stafi í réttri stafrófsröð.

|

Saturday, September 24, 2005

Ég var að setja inn myndir það komu sumar tvisvar og á hlið en ég nenni ekki að laga þær núna verð líka að fara lesa smá efsta myndin er af mér og Orsi aerobick kennara hinar eru af íbúðinni sem ég leigji

|

nítíuogtveir dagar









Ég er ekki alveg að skilja hvað er í gangi. ég hef eldrei verið með neina sérstaka heim,rá, aldrei saknað neins hérna niðurfrá nema kanki lakríss öðru hvoru, en núna er ég búin að vera algjör væluskjóða í viku. En sem betur fer er ég aðeins farin að jafna mig. Ég byrjaði í leikfimi í gær ég er mjög ánægð með að hafa drifið mig af stað ,að skiptir svo miklu máli að hreifa sig og fá útrás svona inn á milli lærdóms. Núna eru bara tvær vikur í fyrsta próf á 0nninni stefni á að vera búin að frumlesa efnið á morgun. Svolítil bjartsýni en það sakar ekki.

|

Saturday, September 17, 2005


Jæja alveg komin tími á blogg hjá mér. Héðan er lítið spennandi að frétta ég er orðin ein í kotinu Jón Ari fór heim í nótt. Ég vissi alveg að það yrði erfitt en var samt ekki alveg undir þetta búin. Er búin að skæla mikið en finn samt alveg að ég á eftir að ráða við þetta. Ég verð bara að líta á þetta sem hvert annað verkefni í lífinu. Áttaði mig á því í morgun þegar mér leið sem verst að erfiðu tímabilin eru þau sem við lærum og þroskumst á. Ég verð að bíta á jaxlinn og þrauka og reyna átta mig á hvað ég læri á þessu.
Þett er búin að vera yndislegar 5 vikur sem við erum búin að eiga saman ég set fljótlega inn fleiri myndir af ungverjalandi, okkur og fleira

|
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com